Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

89% nemenda sem æfa íþróttir eru ánægðir með íþróttafélagið sitt

05.01.2021

Í niðurstöðum Ánægjuvogarinnar 2020 kemur m.a. fram að 89% nemenda sem æfa íþróttir eru ánægðir með íþróttafélagið sitt.

Hér má sjá Ánægjuvogina 2020

Ánægjuvogin er unnin af Rannsóknum og greiningu (R&g) fyrir Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) og Ungmennafélag Íslands (UMFÍ). Rannsóknir og greining hafa lagt spurningalista fyrir nemendur í 8., 9. og 10. bekk frá árinu 1992 í rannsókninni Ungt fólk. Í Ánægjuvoginni felst að spurningar tengdar íþróttum og íþróttaiðkun er bætt við spurningalistana. Listarnir voru lagðir fyrir nemendur bekkjanna í febrúar á þessu ári og var svarhlutfallið 85%.

Kynning fór fram á Ánægjuvoginni 2020. Hægt er að horfa á kynninguna hér.

Niðurstöður Ánægjuvogarinnar eru mjög jákvæðar fyrir íþróttahreyfinguna á Íslandi og taka ÍSÍ og UMFÍ því fagnandi. Þar kemur skýrt fram að þeim nemendum sem eru virkir í skipulögðu íþróttastarfi líður betur og vinna betur í hópi en aðrir. Þetta er mikill fjöldi, því um 90% barna í hverjum árgangi fer í gegnum íþróttastarf með íþróttafélagi á einhverjum tímapunkti. Meirihluti nemendanna metur andlega og líkamlega heilsu sína góða, eru síður líkleg til að sýna af sér frávikshegðun og neyta vímuefna.