Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

19

#Breytumleiknum

16.09.2020

Handknattleikssamband Íslands (HSÍ) er farið af stað með átakið #Breytumleiknum, sem miðar að því að bæta ímynd kvennahandboltans, fá fleiri ungar stelpur til að byrja að æfa handbolta og stunda íþróttir lengur. Nánar má lesa um átakið á www.breytumleiknum.is

Á vefsíðu verkefnisins stendur:
HSÍ fór af stað með átakið #Breytumleiknum til þess að breyta gömlum og úreltum viðhorfum innan íþróttahreyfingarinnar gagnvart ungum stúlkum. Markmiðið með átakinu er að skapa heim þar sem stelpur eru sjáanlegar í íþróttasamfélaginu og eiga sér sterkar og mikilvægar fyrirmyndir. Með þessu vill HSÍ ýta undir iðkun ungra stúlka bæði með meiri umfjöllun og betri umgjörð.

Markmiðið felur einnig í sér að bæta ímynd kvennahandboltans og landsliðsins og fá fleiri ungar stelpur til þess að byrja að æfa handbolta, og stunda íþróttir lengur. Tölfræðin sýnir að strax á 14 ára aldri eru stelpur tvisvar sinnum líklegri til að hætta í íþróttum en strákar og 17 ára gamlar eru helmingur stelpna hættar að æfa íþróttir. Tími barna í íþróttum er talinn vera 10 ár og 78% þeirra stelpna sem hætta segjast ekki sjá fyrir sér neina framtíð í íþróttinni eða telja sig ekki hafa verið nógu góðar. Þessu þurfum við að breyta.

Samfélagslegur ávinningur af aukinni þátttöku stelpna í íþróttum er mikill. Rannsóknir sýna að íþróttir ýta undir sterkari sjálfsímynd krakka og eru mikilvæg forvörn gegn neyslu vímuefna. Jákvæð tengsl eru jafnframt á milli íþrótta og góðrar andlegrar heilsu, þær byggja upp aga og félagsfærni en nýlegar kannanir benda til þess að þar séu íslensk börn eftirbátar annarra.