Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

19

Ólympíuhlaup ÍSÍ sett á morgun

07.09.2020

Ólympíuhlaup ÍSÍ 2020 verður sett í Grunnskóla Grundarfjarðar þann 8. september nk. kl.11:00. Blossi, lukkudýr Smáþjóðaleikanna 2015 verður á staðnum að hvetja nemendur áfram. 

Þátttaka íslenskra grunnskólanemenda hefur verið mjög góð og almenn í gegnum árin. Með Ólympíuhlaupi ÍSÍ er leitast við að hvetja nemendur skólanna til þess að hreyfa sig reglulega og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan. Nemendur geta valið á milli þriggja vegalengda í hlaupinu, þ.e. 2,5 km, 5 km eða 10 km. Að hlaupinu loknu fær hver skóli viðurkenningarskjal þar sem greint er frá árangri, hversu margir tóku þátt og hversu langt var hlaupið. Nú fá nemendur ekki lengur skjal vegna þátttöku og ráða umhverfisástæður þar mestu. Það skal tekið fram að með hlaupinu er fyrst og fremst lögð áhersla á holla hreyfingu og að allir taki þátt. Mjólkursamsalan, MS, hefur frá upphafi styrkt útgáfu viðurkenningarskjala og mun halda því áfram og samstarfsaðili að þessu verkefni er eins og áður Íþrótta- og heilsufræðingafélag Íslands.

Hlaupið er styrkt af verkefninu Íþróttavika Evrópu og verða nöfn þriggja þátttökuskóla, sem ljúka hlaupinu fyrir 10. október og skila inn upplýsingum til ÍSÍ, dregin út úr potti. Hver þessara þriggja skóla fær 100.000 króna inneign í Altis, en Altis selur vörur til íþróttaiðkunar sem nýtast nemendum á skólalóðinni eða í íþróttahúsinu. Þeir skólar sem ljúka hlaupinu eftir 10. október geta eftir sem áður skilað inn upplýsingum og fengið sent viðurkenningaskjal, en gert er ráð fyrir að allir skólar hafi lokið hlaupinu fyrir árslok 2020.

Skráning fer fram hér á vefsíðu ÍSÍ.