Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

07.05.2024 - 07.05.2024

Ársþing HSV 2024

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV)...
26

Göngum í skólann 2020

18.08.2020

Göngum í skólann hefst 2. september næstkomandi. Markmið verkefnisins er að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni. Ein einfaldasta leiðin til að auka hreyfingu í daglegu lífi er að velja virkan ferðamáta, svo sem göngu, hjólreiðar, hlaup, línuskauta og hjólabretti. Ávinningurinn er ekki aðeins bundinn við andlega og líkamlega vellíðan heldur er þetta einnig umhverfisvæn og hagkvæm leið til að komast á milli staða.

Verkefnið er orðið að árlegum viðburði í mörgum skólum og býður upp á lærdómsríka og skemmtilega leið fyrir nemendur til að fræðast um umferðarreglur, öryggi og umhverfismál. Þeir skólar sem ætla að taka þátt í Göngum í skólann fara á vefsíðu Göngum í skólann hér og smella á „Skráning“. Einnig er hægt að hafa samband við Kristínu Birnu, verkefnastjóra Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ í síma: 514-4000 eða á netfangið kristino@isi.is.