Tímaritið Hvati orðið að veftímariti
Íþróttasamband fatlaðra (ÍF) hefur í meira en 30 ár gefið út fréttablaðið Hvata tvisvar á ári þar sem fjallað hefur verið um allt það helsta í íþróttastarfi fatlaðra á Íslandi í máli og myndum.
Stjórn ÍF hefur nú ákveðið að breyta Hvata í veftímarit á vefsíðunni www.hvatisport.is og þar verður hægt að lesa um allt það helsta í íþróttalífi fatlaðra, viðtöl við keppendur, aðstandendur, þjálfara og ýmsan fróðleik um íþróttir fatlaðra. Með því að breyta Hvata í veftímarit gefast auknir möguleikar á birtingu mynda og myndbanda í tengslum við umfjöllunarefni Hvata.
Í nýjasta tölublaði Hvata er meðal annars viðtal við Kristinn Vagnsson skíðagöngumann, Erlendur Egilsson sálfræðingur ræðir um tækifærin í mótlæti, fjallað er um heimsókn Andrew Parsons forseta IPC til Íslands og Hamingjuliðið sem sló í gegn á sínu fyrsta körfuknattleiksmóti.