Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

19

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ næsta laugardag

10.06.2020

Sjóvá Kvenna­hlaup ÍSÍ verður haldið þann 13. júní 2020 á hátt í 70 stöðum á landinu. Einfalt er að kaupa sér bol eða einungis miða í hlaupið á tixis. 

Kaupa miða í Kvennahlaupið.

Nýir tímar í Sjóvá Kvennahlaupi ÍSÍ
Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ 2020 fer fram laugardaginn 13. júní, í 31. sinn. Í upphafi, árið 1990 var markmiðið að hvetja konur til hreyfingar og almennrar þátttöku í íþróttastarfi og óhætt er að segja að það hafi tekist. Í dag á Ísland afrekskonur á öllum sviðum íþrótta og almenn hreyfing með besta móti. Árið 2020 er markmið hlaupsins að hvetja konur til þess að gera hlutina á eigin forsendum og nær sú hugsun langt út fyrir hlaupið og líkamsrækt. Kvennahlaup nútímans snýst um hreyfingu sem hentar hverjum og einum, samveru kynslóðanna, líkamsvirðingu, sanngirni, umhverfismeðvitund og valdeflingu. Einkunnarorð Sjóvá Kvennahlaups ÍSÍ 2020 eru „Hlaupum saman“.

Nýr bolur hannaður af Lindu hjá Scintilla
Nýr og endurhugsaður Kvennahlaupsbolur var afhjúpaður með viðhöfn föstudaginn 22 maí. Bolurinn er tákn nýrra tíma og slær tóninn fyrir nýja hugsun. Til að mæta nýjum tímum þarf nýja hugsun. Hinn klassíski Kvennahlaupsbolur hefur verið einkennismerki hlaupsins um árabil og því fylgdi því talsverð eftirvænting í hvert skipti að sjá hvaða litur yrði á bolunum og þannig hlaupinu öllu það árið. Árið 2020 sjáum við nýjan bol hugsaðan frá grunni en það er Linda Árnadóttir lektor í fatahönnun við Listaháskóla Íslands og eigandi Scintilla sem hannar. Bolurinn er bæði fallegur og praktískur, hentar afar vel sem hlaupa- og æfingaflík en nýtist einnig við önnur tilefni. Bolurinn er 100% endurunninn, úr endurunninni lífrænni bómull og endurunnu plasti.
Í takt við þessa nýju umhverfisstefnu hlaupsins má með einföldum hætti greiða aðeins fyrir þátttöku í hlaupinu á www.tix.is eða á hlaupastað á hlaupadag. Fyrir þá sem ekki kaupa bol er um að gera að koma í eldri Kvennahlaupsbolum. Jafnframt hefur verið ákveðið að afnema útdeilingu verðlaunapeninga en í gegnum tíðina hafa allir þátttakendur farið heim með medalíu.

Allir geta tekið þátt
Í 30 ár hafa þúsundir kvenna um allt land notið þess að hreyfa sig saman í Kvennahlaupinu og í því hafa konur getað sameinað tvo mikilvæga þætti í lífinu; hreyfingu og samveru. Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fer sem fyrr segir fram þann 13. júní á hátt í 70 stöðum á landinu og allir geta tekið þátt óháð aldri, þjóðerni eða kyni. Fólk á öllum aldri kemur saman á hlaupadegi og á saman skemmtilega stund þar sem sumir hlaupa en aðrar ganga. Fjölmennustu hlaupin fara fram í Garðabæ og Mosfellsbæ og í ljósi Covid–19 hafa verða gerðar ráðstafanir á þessum stöðum þar sem svæðinu verður skipt upp í hólf samkvæmt leiðbeiningum fyrir íþróttamannvirki. Minnt er á að það er á ábyrgð hvers hlaupara fyrir sig að verja sjálfan sig og aðra í kringum sig eins vel og hann getur. Þátttakendur eru hvattir til að gera sínar eigin ráðstafanir og virða þessar aðstæður.

Nánari upplýsingar um alla hlaupastaði og tímasetningar er að finna á www.kvennahlaup.is. Hlaupum saman laugardaginn 13. júní.

Miðasala fyrir hlaupið sem og bolasala er á www.tix.is en einnig er hægt að nálgast boli í versluninni Scintilla Laugavegi 40, í Íþróttamiðstöðinni Laugardal, versluninni Barr Living á Garðatorgi, hjá UMF Selfoss í Tíbrá, sundlauginni Jaðarsbökkum Akranesi, skrifstofu ÍSÍ í Íþróttahöllinni Akureyri og hjá Leturstofunni í Vestmannaeyjum.