Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
27.07.2024 - 13.08.2024

Keppni í 100 m...

Anton Sveinn McKee keppir í 100 m bringusundi...
27

Fundarsköp - Örnámskeið

03.06.2020

Eitt það mikilvægasta í félagsstarfi er þekking á fundarsköpum. Hvenær eiga fundarsköp við og hvenær ekki? Hvert er hlutverk fundarstjóra? Hvernig virka breytingartillaga, frávísunartillaga og tilvísunartillaga á aðaltillögu? Öllu þessu og meiru til er svarað í nýju myndbandi sem Gunnar Jónatansson stjórnendamarkþjálfi gerði fyrir ÍSÍ. Myndbandið er hugsað til að auka þekkingu í íþróttahreyfingunni á því hvernig fundarsköp nýtast í stjórnun funda. Myndbandið má nálgast hér á Vimeo-síðu ÍSÍ en einnig hér neðst í fréttinni. 

Þessu til viðbótar má benda á fjögur stutt myndbönd sem ÍSÍ gerði fyrir nokkrum árum í samvinnu við UMFÍ undir merkjum Betra félags. Öll fjalla myndböndin um hvernig halda á fundi og ólík hlutverk stjórnarmanna. Myndböndin má finna hér.

 

Fundarsköp - Örnámskeið from ISI on Vimeo.