Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

49. Ársþing JSÍ

29.05.2020

49. Ársþing Júdósambands Íslands (JSÍ) var haldið 23. maí sl. Jóhann Másson formaður JSÍ setti þingið og bauð þingfulltrúa og gesti velkomna. Þar á eftir fór hann með minningarorð um Naoki Murata fyrrum landsliðsþjálfara sem lést í apríl sl. og var hans minnst með mínútu þögn. Gengið var til venjubundinnar dagskrár, kosið í kjörbréfanefnd sem þegar tók til starfa og aðrar fastar nefndir þingsins og starfsmenn. Í kjörbréfanefnd voru kjörnir Ari Sigfússon, Ásgeir Erlendur Ásgeirsson og Björn Sigurðarson. Í fjárhagsnefnd voru kjörnir Kristján Daðason, Bergur Pálsson og Magnús Ómarsson. Þar sem Magnús var ekki viðstaddur þingið, tók varamaður hans Guðmann Valdimarsson sæti í nefndinn í hans stað. Í laga og leikreglnanefnd voru kjörnir Bjarni Friðriksson, Björn Sigurðarson og Garðar Skaptason. Í allsherjarnefnd voru kjörin Ásgeir Erlendur Ásgeirsson, Birkir Hrafn Jóakimsson og Eydís Mary Jónssdóttir.

Fundarstjóri var kjörinn Hörður Oddfríðarson fyrrum formaður Sundsambands Íslands og ritari Ari Sigfússon. Kjörbréfanefnd skilaði áliti sínu. Tíu félög höfðu rétt á þingsetu með tuttugu og einn fulltrúa en átta félög voru mætt með sautján atkvæði. Um mitt þingið þurfti einn fulltrúi UMFN að yfirgefa þingið og voru þá sextán atkvæði eftir það. Júdódeild KA og Júdódeild Tindastóls skiluðu ekki inn kjörbréfum. Fráfarandi stjórn gaf skýrslu sína og kynnti Jóhann Másson formaður JSÍ hana. Kristján Daðason gjaldkeri JSÍ kynnti ársreikning JSÍ. Ársreikningur var borinn upp til samþykktar og var samþykktur. Stjórn JSÍ lagði fram tillögu að fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár. Kristján Daðason kynnti tillöguna og var hún send til umfjöllunar í fjárhagsnefnd.

Fyrir þinginu voru allnokkrar tillögur en nánari umfjöllun um nefndarálit, tillögur og atkvæðagreiðslur má sjá í fundargerð þingsins.

Í aganefnd voru kosnir Teitur Sveinsson, Haraldur Baldursson og Víkingur Víkingsson. Til vara Daníel Reynisson, Ásgeir Erlendur Ásgeirsson og Halldór Sveinsson.

Í dómaranefnd voru kosnir Sævar Sigursteinsson, Björn Sigurðarson og Birkir Hrafn Jókimsson. Til vara Jón Sigurðsson, Daníel Ólason og Yoshihiko Iura.

Kosningu fulltrúa á Íþróttaþing ÍSÍ var samþykkt samhljóða að vísa til stjórnar.

Í stjórn voru kosin til tveggja ára: Arnar Freyr Ólafsson, Bjarni Skúlason, Karen Rúnarsdóttir og Kristján Daðason. Fráfarandi stjórnarmenn þeir Ásgeir Erlendur Ásgeirsson og Björn Sigurðarson gáfu ekki kost á sér. Þeir varamenn sem hlutu kosningu eru: Teitur Sveinsson, Logi Haralsson og Arnar Þór Sigurðsson.

Runólfur Gunnlaugsson er sjálfkjörinn skoðunarmaður reikninga og Gísli Jón Magnússon sjálfkjörinn varamaður.

Hér má sjá Ársskýrslu JSÍ

Hér má sjá þinggerð