Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

Sáttmáli atvinnubílstjóra og hjólandi vegfarenda

29.04.2020

Sáttmáli um gagnkvæman skilning atvinnubílstjóra og hjólreiðafólks í umferðinni kom út í maí 2019. Markmið sáttmálans er að auka gagnkvæman skilning og koma í veg fyrir slys og tryggja öryggi allra vegfarenda. Samhliða fjölgun hjólreiðafólks undanfarin ár hefur hjólreiðaslysum einnig fjölgað, svo þörfin fyrir sátt og samlyndi ólíkra hópa í umferðinni hefur aldrei verið brýnni. Sáttmálinn inniheldur góð ráð bæði til hjólreiðafólks og atvinnubílstjóra eins og til dæmis um blinda svæði bílstjórans og hættuna fyrir hjólreiðafólk að fara yfir gatnamót. Fjölmörg fyrirtæki og hagaðilar hafa nú þegar innleitt sáttmálann og notað við fræðslu, þjálfun og öryggismiðlun sinna starfsmanna.

Nú hefur sáttmálinn verið gefinn út á þremur tungumálum:
Íslensku
Ensku
Pólsku

Sáttmálinn var gerður í samvinnu Samgöngustofu, Hjólafærni, Vegagerðarinnar, Eflu verkfræðistofu, Hjólaþjálfun, Landssamtaka hjólreiðamanna, Strætó, Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og Reykjavíkurborgar og Siggi danski atvinnubílstjóri kom einnig að undirbúningi hans.

Nánari upplýsingar má nálgast hér á upplýsingasíðu Samgöngustofu.