Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.10.2023 - 12.08.2023

Fundur hjá...

Í dag er fundur hjá framkvæmdastjórn ÍSÍ...
23.11.2023 - 12.08.2023

Fundur hjá...

Í dag er fundur hjá framkvæmdastjórn ÍSÍ...
07.12.2023 - 12.08.2023

Fundur hjá...

Í dag er fundur hjá framkvæmdastjórn ÍSÍ...
3

ÍSÍ fundar með UMSB

24.01.2020

Viðar Sigurjónsson skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri átti fund með framkvæmdastjóra UMSB í Borgarnesi þriðjudaginn 21. janúar síðastliðinn í tengslum við umsókn UMSB um viðurkenningu frá ÍSÍ sem Fyrirmyndarhérað. Einnig fundaði Viðar með fulltrúa knattspyrnudeildar Umf. Skallagríms vegna endurnýjunar deildarinnar sem Fyrirmyndardeild ÍSÍ.

Á myndinn eru frá vinstri, Páll Snævar Brynjarsson formaður knattspyrnudeildar Umf. Skallagríms, Viðar Sigurjónsson skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri og Sigurður Guðmundsson framkvæmdastjóri UMSB.

Fyrirmyndarfélag ÍSÍ og Fyrirmyndarhérað ÍSÍ eru gæðaverkefni íþróttahreyfingarinnar er snúa að íþróttastarfi. Með því að taka upp gæðaviðurkenningu fyrir íþróttastarf geta íþróttafélög, -deildir eða -héruð sótt um viðurkenningu til ÍSÍ miðað við þær gæðakröfur sem ÍSÍ gerir. Standist þau þessar kröfur fá þau viðurkenningu á því frá ÍSÍ og geta kallað sig Fyrirmyndarfélag ÍSÍ, Fyrirmyndardeild ÍSÍ eða Fyrirmyndarhérað ÍSÍ. ÍSÍ hvetur íþróttafélög, -deildir og -héruð til að sækja um þessa viðurkenningu til ÍSÍ.

Umsjón með verkefninu hefur Viðar Sigurjónsson (vidar@isi.is), skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri.

Lesa má meira um Fyrirmyndarfélag ÍSÍ hér.

Lesa má meira um Fyrirmyndarhérað ÍSÍ hér.