Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

Vorfjarnám 2020, þjálfaramenntun 1. og 2. stigs ÍSÍ

08.01.2020
Vorfjarnám 1. og 2. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ hefst mánudaginn 3. feb. nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. stigi. Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ hverju sinni.
Nám beggja stiga er allt í fjarnámi, engar staðbundnar lotur. Námið hefur verið afar vinsælt undanfarin ár og þátttakendur komið frá fjölda íþróttagreina. Námið veitir réttindi til íþróttaþjálfunar og jafnframt rétt til áframhaldandi náms til frekari réttinda.
Þátttökugjald á 1. stig er kr. 30.000.- og öll námskeiðsgögn eru innifalin í því verði. Þátttökugjald á 2. stig er kr. 28.000.- og öll námskeiðsgögn eru innifalin. Athugið að þeir nemendur/þjálfarar sem koma frá fyrirmyndarfélögum/-deildum ÍSÍ fá 20% afslátt af námskeiðsgjaldi.
Skráning er rafræn og þarf henni að vera lokið fyrir föstudaginn 31. jan. Rétt til þátttöku á 1. stigi hafa allir sem lokið hafa grunnskólaprófi. Til þátttöku á 2. stigi þarf að hafa lokið 1. stigi, hafa gilt skyndihjálparnámskeið og 6 mánaða starfsreynslu sem þjálfari. 
Skráning á bæði stig í vorfjarnámi þjálfaramenntunar ÍSÍ 2020 er hér.
Allar nánari uppl. um fjarnámið og þjálfaramenntun ÍSÍ gefur Viðar Sigurjónsson í síma 4601467/8631399 eða á vidar@isi.is