Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
19

Íþróttavika Evrópu - Íshokkí

24.09.2019

Skautahöllin í Laugardal býður öllum að koma og læra að skauta í Skautahöllinni vikuna 23. - 30. september í tilefni af Íþróttaviku Evrópu. Frábærir þjálfarar taka vel á móti öllum byrjendum. Hægt er að fá skauta, hjálma og allan búnað lánaðan frítt.

Stelpuæfingar eru alla mánudaga kl. 18:15-19:15. Fyrir byrjendur og lengra komna á öllum aldri.

Íshokkískóli SR fyrir alla byrjendur – stráka og stelpur:
þriðjudaga kl.18-19
föstudaga kl.17.30-18.15
sunnudaga kl.11.45-12.45

Allar nánari upplýsingar má nálgast hér.

 

Íþróttavika Evrópu 

Frá 23. - 30. september fer fram Íþróttavika Evrópu. Markmiðið með Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna við auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Íþróttavikan er ætluð öllum óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Sérstök áhersla er lögð á að höfða til grasrótarinnar og að hvetja Evrópubúa til að sameinast undir slagorðinu #BeActive til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi.

Vefsíða verkefnisins er www.beactive.is og þar má nálgast nánari upplýsingar um viðburði vikuna 23. - 30. september. Verkefnið er líka að finna á Facebook hér.

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hlaut styrk frá Evrópusambandinu í gegnum Erasmus+ styrkjakerfið vegna Íþróttaviku Evrópu.