Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
16

Dagskrá ráðstefnu Sýnum karakter

24.09.2019

Laugardaginn 5. október fer fjórða Sýnum karakter ráðstefna ÍSÍ og UMFÍ fram. Yfirskrift ráðstefnunnar er: Hvernig getur keppnisfyrirkomulag mótað eða eyðilagt karakter? 

Dagskrá er fjölbreytt og áhugaverð. Flutt verða erindi sem tengjast breyttu keppnisfyrirkomulagi og því hvernig hægt er að virkja og byggja upp karakter hjá börnum og ungmennum.

Ráðstefnan fer fram í Háskólanum í Reykjavík og stendur hún frá kl. 09:30 – 12:30. Verð er 2.500kr. Skráning og greiðsla fer fram hér.

Starfsfólk og sjálfboðaliðar innan íþrótta- og ungmennafélagshreyfingarinnar eru hvattir til að mæta. Vert er að geta þess að uppselt hefur verið á allar fyrri ráðstefnur Sýnum karakter til þessa.


Dagskrá

Kl. 09:30 Setning

Kl. 09:40 Dr. Viðar Halldórsson, félagsfræðingur og hugmyndasmiður Sýnum karakter: Virkjum karakter - hugmyndir og hindranir.

Kl. 10:15 Sólveig Jónsdóttir, framkvæmdastjóri FSÍ: Að lyfta fjöldanum - nýtt mótafyrirkomulag í áhaldafimleikum.

Kl. 10:30 Arnar Bill Gunnarsson, fræðslustjóri KSÍ: Spilað til sigurs.

Kl. 10:45 Sveinn Þorgeirsson, aðjúnkt á íþróttafræðasviði HR: Handboltaleikir fyrir börn.

Kl. 11:00 Kaffihlé.

Kl. 11:20 André Lachance, Sport for life Canada: Competition is a good servant but a poor master.

Kl. 12:00 Sigurður Guðmundsson, framkvæmdastjóri UMSB. Hvernig gerum við gott félag betra? Innleiðing á Sýnum karakter.

Kl. 12:15 Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir, fréttamaður og móðir fatlaðs íþróttamanns: Sigurför fyrir sjálfsmyndina.

Ráðstefnustjóri er Pálmar Ragnarsson.