Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

19

PyeongChang 2018 - Sögur keppenda

08.03.2019

Vetrarólympíuleikarnir fóru fram í PyeongChang í Suður- Kóreu 9. - 25. febrúar 2018 og því rúmt ár frá því leikarnir voru settir. Fulltrúar Íslands á leikunum voru Freydís Halla Einarsdóttir og Sturla Snær Snorrason í alpagreinum, Elsa Guðrún Jónsdóttir, Snorri Einarsson og Isak Stianson Pedersen í skíðagöngu.

Margs er að minnast frá Vetrarólympíuleikunum 2018 og var Ólympíustöðin með beina útsendingu frá því þegar besta íþróttafólk heims atti kappi. Ásamt því sýndi stöðin viðtöl við íþróttafólk og hin ýmsu myndbönd og samantektir frá leikunum. Stöðin vill nú minna aðdáendur íþrótta á þessa stórkostlegu Vetrarólympíuleika þegar að ár er liðið frá setningarhátíð leikanna og sýndi við það tilefni á dögunum samantekt sem kallast „Spólað til baka: PyeongChang 2018“ sem sjá má hér. Á stöðinni er  einnig hægt að sjá þættina Vetrarsögur, sem fjalla um leikana í PyeongChang.

Það má segja að mörg eftirtektarverð augnablik hafi átt sér stað á þessum rúmu tveimur vikum á meðan á leikunum stóð, t.d. vann norska liðið hug og hjörtu fólks um allan heim með frammistöðu sinni og íþróttafólk frá Norður-Kóreu og Suður-Kóreu gekk saman inn á Ólympíuleikvanginn á setningarhátíðinni. Thomas Bach, forseti Alþjóðaólympíunefndarinnar, segir í nýlegu viðtali við Around the Rings (sem sjá má hér) að Vetrarólympíuleikarnir 2018 hafi opnað á pólitískar viðræður á milli Norður-Kóreu og Suður-Kóreu og að leiðtogar beggja þjóða hafi falast eftir því við Alþjóðaólympíunefndina að hún haldi áfram að aðstoða þjóðirnar við samvinnu. Þann 15. febrúar sl. leiddi Alþjóðaólympíunefndin vinnufund með fulltrúum frá Ólympíunefndum Norður-Kóreu og Suður-Kóreu ásamt íþróttamálaráðherrum beggja þjóða, en á þeim fundi var áframhaldandi samvinna þjóðanna á sviði íþrótta rædd. Sérstaklega voru Ólympíuleikarnir í Tókýó 2020 ræddir og hvernig þjóðirnar geti unnið saman fyrir leika og á meðan á leikunum stendur. Hægt er að nálgast fréttatilkynningu um fundinn frá Alþjóðaólympíunefndinni á vefsíðu nefndarinnar www.olympic.org.

Myndband frá setningarhátíðinni

Vefsíða Ólympíustöðvarinnar

Samfélagsmiðlar Ólympíustöðvarinnar: FacebookInstagramTwitter og YouTube.