Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
18

Samningur ÍSÍ og Air Iceland Connect

21.01.2019

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) og Air Iceland Connect (AIC) hafa nú gert með sér samning um afsláttarkjör á innanlandsflugi fyrir íþróttahreyfinguna sem gildir til 31. janúar 2020. Samstarf ÍSÍ og AIC hefur verið langt og farsælt. Þátttaka í íþróttastarfi á Íslandi felur í sér mikil og kostnaðarsöm ferðalög og mikilvægt er að búa við öruggar og reglubundnar flugsamgöngur á milli landshluta. Líney R. Halldórsdóttir framkvæmdastjóri ÍSÍ og Árni Gunnarsson forstjóri AIC undirrituðu samninginn formlega sl. föstudag.

Á síðasta ári var tekið upp nýtt fyrirkomulag vegna einstaklingsbókana og verður það óbreytt skv. nýjum samingi. Einstaklingsbókanir fara alfarið í gegnum bókunarvél á vefsíðu AIC og er notast við inneignarkóða sem fela í sér 2.500 króna inneign. Einungis er hægt að nota eitt inneignanúmer pr. fluglegg. Hægt er að nota inneignina upp í fargjöld í öllum verðflokkum sem í boði eru á bókunarsíðu AIC. Þar sem afslátturinn er föst upphæð þá er hann hlutfallslega hagstæðastur á lægstu fargjöldunum. Góður fyrirvari á bókun getur því borgað sig. Inneignarkóðana þarf að nálgast fyrirfram á skrifstofu ÍSÍ á hefðbundnum skrifstofutíma og því er hreyfingin hvött til að setja sig í samband við ÍSÍ í góðum tíma fyrir bókun. Til þess að fá inneignarkóða þarf að senda póst á linda@isi.is

Hópabókanir fara eftir sem áður í gegnum Hópadeild AIC og eru ÍSÍ-hópafargjöldin tíunduð í samningnum sem finna má hér á vefsíðu ÍSÍ.

Eins og áður er samningur ÍSÍ og AIC byggður á gagnkvæmu trausti og virðingu á milli aðila. Sambandsaðilar eru hvattir til að kynna sér samninginn vel og hafa tímann fyrir sér við bókanir, ef mögulegt er. Það eykur líkurnar á því að menn nái að bóka ferðirnar á hagstæðum kjörum.

Athugið að til þess að fá inneignarkóða þarf að senda póst á linda@isi.is, því næst er farið á vefsíðu AIC og flug bókað með inneignarkóðann við hönd.