Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Íþróttamaður ársins 2018

27.12.2018

Samtök íþróttafréttamanna og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands halda sameiginlegt hóf í tengslum við kjör Íþróttamanns ársins 2018. Hófið verður haldið þann 29. desember í Silfurbergi í Hörpu og hefst kl. 18:00.

Dagskráin samanstendur af afhendingu viðurkenninga ÍSÍ til íþróttakvenna og íþróttamanna sérgreina íþrótta og kjöri Samtaka íþróttafréttamanna um Íþróttamann ársins 2018. Afhending viðurkenninga íþróttafólks sérsambanda fer fram í beinni útsendingu á RÚV2 frá kl. 18:00. Bein útsending frá kjöri íþróttamanns ársins fer fram frá kl. 19:40 á RÚV.

Íþróttamaður ársins er nú kjörinn í 63. sinn en þjálfari og lið ársins í sjöunda sinn.

Útnefnt verður í Heiðurshöll ÍSÍ. Heiðurshöll ÍSÍ er óáþreifanleg höll afreksíþróttafólks og afreksþjálfara Íslands, í ætt við Hall of Fame á erlendri grundu. Framkvæmdastjórn ÍSÍ útnefnir einstaklinga í Heiðurshöll ÍSÍ eftir reglugerð þar að lútandi og er Heiðursráð ÍSÍ ráðgefandi aðili varðandi tilnefningar. Með þessu verkefni vill ÍSÍ skapa vettvang til að setja á frekari stall framúrskarandi fólk og skapa minningar í máli og myndum af þeirra helstu afrekum. Heiðurshöll ÍSÍ má sjá á vefsíðu ÍSÍ hér.