Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

25.10.2024 - 26.10.2024

Landsþing LH 2024

Ársþing Landssambands hestamannafélaga verður...
01.11.2024 - 30.11.2024

Syndum

Verkefnið Syndum hefst 1. nóvember og stendur...
12.11.2024 - 12.11.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
24

Íþróttamaður Þróttar Neskaupsstað

14.12.2018

Þann 2. desember sl. var tilkynnt um kjör Íþróttamanns Þróttar Neskaupsstað fyrir árið 2018. Fimm voru tilnefnd: Ana Maria Vidal Bouza fyrir blak, Geir Sigurpáll Hlöðversson fyrir karate, Jóhanna Lind Stefánsdóttir fyrir knattspyrnu, Andri Gunnar Axelsson fyrir skíði og Hlynur Karlsson fyrir sund.

Fyrir valinu varð Ana Maria Vidal Bouza. Hún átti frábært tímabil í fyrra og var ein af driffjöðrunum í frábæru gengi kvennaliðsins þegar þær urðu þrefaldir meistarar. Sem uppspilari liðsins stýrði hún liðinu vel. Hún var m.a valin MVP í bikarúrslitum og besti leikmaður Mizuno deildarinnar.

ÍSÍ óskar Ana Maria Vidal Bouza til hamingju með árangurinn.