Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

23

Afrekssjóður ÍSÍ 2018 - Úthlutun ársins tæpar 350 m.kr.

13.12.2018
 
Miklar breytingar hafa átt sér stað hjá Afrekssjóði ÍSÍ á árinu. Að loknu Íþróttaþingi ÍSÍ 2017 var samþykkt ný reglugerð fyrir sjóðinn og hefur allt ferli í kringum styrkveitingar, kröfur og eftirfylgni tekið breytingum frá fyrri árum.
 
Heilt yfir má segja að breytingarnar hafi gengið vel og fulltrúar sérsambanda ÍSÍ hafa tekið nýju vinnulagi fagnandi og farið í mikla vinnu við að skipuleggja enn frekar afreksstarf sérsambanda og unnið að því að uppfylla þær kröfur sem nýtt umhverfi afreksíþrótta felur í sér.
 
Stjórn Afrekssjóðs ÍSÍ festi ákveðinn ramma fyrir styrkveitingar sem kynntur var fyrir sérsamböndum og fól í sér upplýsingar um áherslur sjóðsstjórnar vegna ársins 2018. Samhliða því staðfesti stjórn sjóðsins flokkun sérsambanda í afreksflokka, en slíkt er ein forsenda þeirra möguleika sem hvert sérsamband hefur gagnvart úthlutunum og stillir jafnframt af þær kröfur sem gerðar eru til viðkomandi sérsambands.
 
Verkaskipting á milli stjórnar Afrekssjóðs ÍSÍ og stjórnar Afreks– og Ólympíusviðs ÍSÍ hefur einnig tekið breytingum samhliða nýju fyrirkomulagi og hafa breytingarnar tekist vel. Með breytingunum hafa aðilar í stjórn sviðsins tekið að sér að vera í reglulegum samskiptum við sérsambönd og sett sig betur inní það starf sem á sér stað innan þeirra. Heilt yfir má segja að aukin samskipti, upplýsingastreymi og stefnumótun hafi einkennt þetta ár og var það ein af áherslum þeirra breytinga sem gerðar voru á Afrekssjóði ÍSÍ og afreksstarfi ÍSÍ og sérsambanda.
 
Heildarúthlutun ársins 2018 til sérsambanda ÍSÍ er kr. 349.300.000,-
Er það um 100 m.kr. hækkun frá síðasta ári, en að endanlegar tölur vegna ársins 2017 voru 249.116.258,-
 
Á heimasíðu ÍSÍ og Afrekssjóðs ÍSÍ má nú sjá hvernig styrkveitingar skiptast á milli sérsambanda ÍSÍ árið 2018 og hvernig endanlegar styrkveitingar eru vegna ársins 2017.
 
Þá hefur Afrekssjóður ÍSÍ gefið út skýrslu vegna ársins 2018 þar sem má finna fróðleik um starfsemi sjóðsins og áherslur.