Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
27.07.2024 - 13.08.2024

Keppni í 100 m...

Anton Sveinn McKee keppir í 100 m bringusundi...
27

Þjálfarastyrkir auglýstir til umsóknar

14.09.2018

Stjórn Verkefnasjóðs ÍSÍ auglýsir hér með eftir umsóknum um þjálfarastyrki ÍSÍ. Þjálfarastyrkir ÍSÍ eru veittir íþróttaþjálfurum sem sækja sér menntun erlendis í formi námskeiða eða ráðstefna og bæta þekkingu sína í þjálfun, sem mun nýtast íþróttahreyfingunni á Íslandi. Umsóknarfrestur er til 5. október og er upphæð hvers styrkjar að hámarki 100.000 krónur. Umsóknum skal skila á þar til gerðum eyðublöðum sem finna má á vefsíðu ÍSÍ hér.

Umsókn sendist á ragnhildur@isi.is eða merkt Þjálfarastyrkur til: Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Engjavegi 6, 104 Reykjavík.