Smáþjóðaleikar 2019
Næstu Smáþjóðaleikar fara fram í Svartfjallalandi 27. maí til 1. júní 2019. Þann 31. júlí sl. voru 300 dagar til leika. Svartfjallaland tók þátt í fyrsta sinn á Smáþjóðaleikunum árið 2011 og er nú í fyrsta sinn gestgjafi leikanna. Keppnisgreinar á leikunum eru frjálsíþróttir, sund, júdó, skotíþróttir, tennis, borðtennis, körfuknattleikur, bowls, blak og strandblak. Allir þátttakendur á leikunum munu gista á sama hótelinu í strandbænum Budva sem liggur að Adríahafinu. Íslendingar hafa verið afar sigursælir á Smáþjóðaleikum í gegnum tíðina og alla jafna er stór hópur fólks sem tekur þátt í leikunum fyrir Íslands hönd.
Slagorð leikanna að þessu sinni er “Be fair by nature”, en Svartfjallaland er hluti af áætluninni „Grænir leikar“ sem styrkt er af Ólympíusamhjálpinni, þar sem markmiðið er að koma á fót sjálfbærum íþróttaviðburði. Áætlunin samanstendur af því að setja fram ákveðna umhverfisstaðla sem tengjast skipulagningu íþróttaviðburða ásamt menntun og kynningu á umhverfismálum.