Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

Þróunarstjóri ITF í Evrópu í heimsókn

20.06.2018

Þróunarstjóri Alþjóða Tennissambandsins (ITF) í Evrópu, Vitor Cabral, kom í heimsókn til Tennissambands Íslands á dögunum. Hann heimsótti ÍSÍ og fundaði m.a. með Ragnhildi Skúladóttur sviðsstjóra Þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ, Örvari Ólafssyni verkefnastjóra Afreks- og Ólympíusviðs ÍSÍ ásamt stjórnarmönnum úr TSÍ. Ísland er það land innan Tennis Europe sem fjærst er meginlandinu og hefur aðeins þrjá innanhúss tennisvelli. Það er mikil áskorun við uppbyggingu nýrra afreksleikmanna. Þrátt fyrir þetta hefur landið öfluga tenniskennslu fyrir alla og mikil áhersla á kennslu barna og ungmenna.

Markmið Þróunarstjórans var að funda með helstu íþróttastofnunum landsins, borg og stjórnvöldum til að einbeita sér að því að búa til fleiri tennisvelli innandyra, sem verður aðalmarkmið Alþjóða Tennissambandsins, Tennis Europe og Tennissambands Íslands á næstu árum, auk þess að halda áfram að styðja við ungmennaáætlanirnar og aðrar áætlanir.

Tennissamfélagið á Íslandi fær kærkomið tækifæri til að sjá bestu tennisspilara unglingastigs í Evrópu á viðburði eftir um tvær vikur, þegar U14 og U16 Tennis Europe Junior Tour Reykjavík Open byrjar 2. júlí næstkomandi.

Myndir með frétt