Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Metoo og börnin - öryggi barna og ungmenna í tómstunda-, íþrótta- og æskulýðsstarfi

13.03.2018

Náum áttum, samstarfshópur um fræðslu- og forvarnarmál, stendur fyrir morgunverðarfundi á morgun, miðvikudaginn 14. mars, á Grand Hótel kl.08:15-10:00 sem ber heitið „Metoo og börnin - öryggi barna og ungmenna í tómstunda-, íþrótta- og æskulýðsstarfi“.

Með erindi verða:

Salvör Nordal, umboðsmaður barna, með erindið „Réttindi barna í ljósi Metoo-umræðunnar“.

Hafdís Inga Helgud. Hinriksdóttir, M.A. í félagsráðgjöf og sálfræðingur í Bjarkarhlíð, miðstöð fyrir brotaþola ofbeldis, með erindið „Ótti við útskúfun - reynslusaga“.

Ragnhildur Skúladóttir, sviðsstjóri Þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ, með erindið „Öryggi barna í íþróttum í ljósi #metoo“. 

Fundarstjóri er Árni Einarsson.

Þátttökugjald er kr.2400 sem þarf að staðgreiða. Morgunmatur er innifalinn í gjaldinu.

Skráning fer fram á www.naumattum.is