Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Lífshlaupið - Grunn- og framhaldsskólakeppni lokið

14.02.2017

Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra landsmanna með það að markmiði að hvetja landsmenn til að gera hreyfingu að föstum lið í lífi sínu, hvort sem er í frítímanum, í vinnunni, í skólanum eða við val á ferðamáta.

Lífshlaupið var sett 1. febrúar í ár. Í dag, 14. febrúar, er síðasti dagurinn í grunn- og framhaldsskólakeppni Lífshlaupsins. Nú er því tíminn fyrir börn og unglinga til að taka góðan endasprett í átt að lokamarkinu og klára keppnina með stæl.

Greinilegt er að þátttakendur Lífshlaupsins hafa tekið vel á því í hlýindunum um helgina því að nú nálgast skráðar hreyfimínútur 9 milljónir mínútna og dagar með lágmarkshreyfingu eru orðnir rétt rúmlega100 þúsund talsins. ÍSÍ hvetur alla vinnustaði til að hvetja sitt fólk til að hreyfa sig og skrá hreyfinguna sína. Það er nóg eftir að keppninni og hörð keppni um efstu sætin í flestum flokkum.

Verðlaunahafending Lífshlaupsins mun fara fram föstudaginn 24. febrúar í sal KSÍ og hefst hún kl. 12:10. Glæsilegir viðurkenningarplattar eru í boði fyrir þá sem skara fram úr í keppninni ásamt þeim sæmdarheiðri sem því fylgir.

Hér má sjá vefsíðu Lífshlaupsins.

Lífshlaupið er á Facebook.