Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
27.07.2024 - 13.08.2024

Keppni í 100 m...

Anton Sveinn McKee keppir í 100 m bringusundi...
27

Áhugavert efni á Ólympíustöðinni

15.12.2016

Ólympíustöðin er ókeypis vettvangur sem sýnir beint frá íþróttaviðburðum, er með nýjustu fréttir og býður upp á útsendingar tileinkaðar íþróttum og íþróttamönnum allt árið um kring. Stöðin leggur áherslu á afreksíþróttamenn og þeirra leið að meiri árangri. Að auki er hægt að skrá sig sem notanda að Ólympíustöðinni. Því fylgir persónulegri reynsla, þar sem skráðir notendur geta fylgst með uppáhalds íþróttamönnum sínum, liðum, íþróttum og löndum. Umhverfið á síðunni býður einnig upp á að deila efni á samfélagsmiðla og hvetur notendur til að hafa aukin samskipti við Ólympíuhreyfinguna. Á Ólympíustöðinni geta aðdáendur upplifað kraft íþróttanna og Ólympíuhreyfingarinnar allt árið, hvar sem er og hvenær sem er. 

Hægt er að ná sér í Ólympíustöðvar-smáforrit í símann, en einnig er hægt að horfa á stöðina á vefsíðu Olympic Channel. Íþróttamenn og aðdáendur geta einnig fylgt Ólympíustöðinni á samfélagsmiðlasíðum hennar, FacebookInstagramTwitter og YouTube