Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Samstarfssamningar Almenningsíþróttasviðs

06.12.2016

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ verður haldið í 28. sinn þann 18. júní 2017. Undirbúningur fyrir hlaupið er kominn á fullt og á dögunum var undirritaður samstarfssamningur við Beiersdorf til tveggja ára vegna aðkomu þeirra að Sjóvá Kvennahlaupi ÍSÍ.

Beiersdorf hefur verið samstarfsaðili Sjóvá Kvennahlaups ÍSÍ frá árinu 2011 og er Kvennahlaupsnefnd ÍSÍ afar ánægð með þetta áframhaldandi samstarf.

Samstarfssamningurinn felur í sér að merki NIVEA verður á annarri ermi Kvennahlaupsbolsins sem og á völdu kynningarefni í tengslum við Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ. Beiersdorf mun gefa þátttakendum í Sjóvá Kvennahlaupi ÍSÍ glaðning að hlaupi loknu og mun einnig færa öllum framkvæmdaaðilum Kvennahlaupsins á Íslandi veglega jólagjöf.

Einnig hefur ÍSÍ undirritað samstarfssamning við Árvak hf. vegna aðkomu þeirra að Sjóvá Kvennahlaupi ÍSÍ. Samstarfssamningurinn felur í sér líkt og áður að merki mbl.is verður á annarri ermi Kvennahlaupsbolsins sem og á völdu kynningarefni í tengslum við hlaupið. Morgunblaðið hefur verið samstarfsaðili Sjóvá Kvennahlaups ÍSÍ undanfarin ár, en mbl.is er nú í fyrsta skipti samstarfsaðili Sjóvá Kvennahlaups ÍSÍ.

Á meðfylgjandi mynd má sjá Sigurð Gröndal fyrir hönd mbl.is og Hrönn Guðmundsdóttur fyrir hönd ÍSÍ eftir undirritun samningsins.