Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

25.10.2024 - 26.10.2024

Landsþing LH 2024

Ársþing Landssambands hestamannafélaga verður...
01.11.2024 - 30.11.2024

Syndum

Verkefnið Syndum hefst 1. nóvember og stendur...
21.11.2024 - 21.11.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
15

Fundur Evrópusambands Ólympíunefnda í Brussel

24.10.2016

Nefnd Evrópusambands Ólympíunefnda (EOC) um Evrópumálefni hittist á dögunum á EU-skrifstofu samtakanna í Brussel. Lárus L. Blöndal forseti ÍSÍ á sæti í nefndinni.

Juri Tamm, formaður nefndarinnar, stýrði fundinum ásamt Folker Hellmund sem stýrir skrifstofunni. Farið var yfir helstu málefni sem skrifstofan hefur til umfjöllunar þessa dagana svo sem innleiðingu Agenda 2020, styrki til ólympíunefnda, EU Sport Model og verkefni um góða stjórnunarhætti. Nefndin kynnti niðurstöður fundarins á aðalfundi Minsk í Hvíta-Rússlandi dagana 20.-21. október sl.

Á myndinni má sjá frá vinstri: Valentin Capelli, Matthias Van Baelen, Folker Hellmund, Rusika Aptsiauri frá Georgíu, Niels Nygaard frá Danmörku, Juri Tamm frá Eistlandi og Lárus L. Blöndal forseta ÍSÍ.