Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

19

Paralympic dagurinn 22. okt

17.10.2016

Paralympic - dagurinn er stórskemmtilegur kynningardagur á íþróttum fatlaðra á Íslandi. Viðburðurinn verður haldinn laugardaginn 22. október nk. frá kl. 14:00-16:00 í frjálsíþróttahöllinni í Laugardal.

Paralympics er stærsta íþróttamót fatlaðra afreksmanna í heiminum. Fólk með fötlun er sérstaklega hvatt til að mæta í frjálsíþróttahöllina og kynna sér íþróttaflóruna. 

Á meðal þess sem verið er að kynna eru íþróttagreinarnar boccia, borðtennis, sund, frjálsíþróttir, bogfimi, lyftingar og hjólastólakörfubolti. 

Sveppi tekur á móti gestum og skorar á alla sem þora í íþróttakeppni.

ÍSÍ hvetur fólk til þess að mæta á þennan skemmtilega viðburð á vegum Íþróttasambands fatlaðra.