Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

07.05.2024 - 07.05.2024

Ársþing HSV 2024

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV)...
26

Göngum í skólann dagurinn

05.10.2016

Alþjóðlegi göngum í skólann dagurinn er í dag og um leið er það síðasti dagur verkefnisins Göngum í skólann, sem hófst 7. september. Markmið verkefnisins er að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni. Almenningsíþróttasvið ÍSÍ sér um verkefnið á Íslandi.

Ein einfaldasta leiðin til að auka hreyfingu í daglegu lífi er að velja virkan ferðamáta, svo sem göngu, hjólreiðar, hlaup, línuskautar og hjólabretti. Ávinningurinn er ekki aðeins bundinn við andlega og líkamlega vellíðan heldur er þetta einnig umhverfisvæn og hagkvæm leið til að komast á milli staða.

Á síðasta ári tóku milljónir barna í yfir 40 löndum víðs vegar um heiminn þátt í Göngum í skólann með einum eða öðrum hætti. Hér á landi voru 67 skólar skráðir til leiks í ár og hefur þátttakan vaxið jafnt og þétt gegnum árin, en fyrsta árið voru þátttökuskólar 26. 

Að Göngum í skólann verkefninu standa eftirtaldir aðilar: Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Samgöngustofa, Embætti landlæknis, Ríkislögreglustjóri, mennta- og menningarmálaráðuneytið, Heimili og skóli og Slysavarnarfélagið Landsbjörg.

ÍSÍ þakkar öllum skólum kærlega fyrir þátttökuna. Vonandi taka sem flestir þátt aftur að ári liðnu. Þrátt fyrir að verkefninu sé nú formlega lokið þá hvetur ÍSÍ alla til þess að halda áfram að halda þema verkefnisins á lofti og nýta sér virkan ferðamáta.