Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Kaffisamsæti SÍÓ 14. apríl

11.04.2016

Stjórn Samtaka íslenskra ólympíufara (SÍÓ) býður öllum ólympíuförum; keppendum, þjálfurum flokkstjórum, læknum, o.fl. til kaffisamsætis n.k. fimmtudag 14. apríl kl: 17:00 í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, Cafe Easy á fyrstu hæð.

Félagar rifja upp áhugaverð atvik og keppnir á viðkomandi ólympíuleikum. Ræða einnig áframhald þessara kaffisamsæta og sjónvarpssendingar frá Ólympíuleikunum í Ríó. Stjórn SÍÓ mun kynna félagatal okkar, facebooksíðu og heimasíðu, einnig hugmynd að íþróttaminjasafni (Olympic Sports Museum).

Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til Alvars á ÍSÍ   alvar@isi.is, s. 615 1051  og/eða til Jóns Hjaltalín, s. 856 2301.

Stjórn samtakanna vonast til að sjá sem flesta Ólympíufara.