Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.10.2023 - 12.08.2023

Fundur hjá...

Í dag er fundur hjá framkvæmdastjórn ÍSÍ...
23.11.2023 - 12.08.2023

Fundur hjá...

Í dag er fundur hjá framkvæmdastjórn ÍSÍ...
07.12.2023 - 12.08.2023

Fundur hjá...

Í dag er fundur hjá framkvæmdastjórn ÍSÍ...
23

Ólympíuleikar í Ríó eftir 200 daga

19.01.2016

Sumarólympíuleikarnir 2016 verða settir þann 5. ágúst nk. í Ríó de Janeiro í Brasilíu.  Í gær, mánudaginn 18. janúar, voru 200 dagar í að setningarhátíðin fari fram á Maracana vellinum í Ríó.

Búið er að gefa út áætlun um ýmsa viðburði sem munu eiga sér stað á næstu 200 dögum, og hefur tímabilinu verið skipt niður í fjögur 50 daga tímabil. 

Í því fyrsta er m.a. verið að prenta miða á viðburði leikanna, semja lag leikanna og framleiða fatnað fyrir sjálfboðaliða.

Í öðrum hluta ber hæst tendrum Ólympíueldsins í Olympiu í Grikklandi, en tendrunin mun eiga sér stað þann 21. apríl nk.

Kyndilhlaupið hefst síðan í þessu þriðja tímabili og þá er einnig verið að vinna í framkvæmdum er snúa að setningar- og lokahátið leikanna.

Hér má finna skemmtilegt myndband um þessi tímamót.