Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
19

Úrslit liggja fyrir í Þrekraunum

11.12.2015Þrekraunir er norræn íþróttakeppni fyrir nemendur í 7. og 8. bekk í grunnskólum Norðurlandanna. Keppnin er á milli bekkja og er það heildarárangur allra nemenda í hverjum bekk sem telur.  
Sigurvegarar ársins í 7. bekk komu frá Danmörku og sigurvegarar 8.bekkjar komu frá Noregi. Einnig voru veitt önnur verðlaun í keppnum beggja aldurshópa en um peningaverðlaun er að ræða.

Að auki voru fimm bekkir dregnir úr hópi þátttökubekkja og fékk hver um sig um 40.000 krónur (2.000 Dkr) í útdráttarverðlaun. Einn íslenskur bekkur datt í lukkupottinn og var það 7.bekkur í Grunnskólanum á Hellu.

Það eru íþróttakennarar hvers skóla sem sjá um framkvæmd Þrekrauna í hverjum bekk.