Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

15.04.2023 - 15.04.2023

Ársþing ÍF 2023

Ársþing Íþróttasambands fatlaðra (ÍF) verður...
15.04.2023 - 15.04.2023

Ársþing BLÍ 2023

Ársþing Blaksambands Íslands verður haldið í...
31

Paralympic - dagurinn

27.10.2015

Paralympic - dagurinn er stórskemmtilegur kynningardagur á íþróttum fatlaðra á Íslandi. Viðburðurinn verður haldinn laugardaginn 31. október nk. frá kl. 14:00-16:00 í frjálsíþróttahöllinni í Laugardal.

Paralympics er stærsta íþróttamót fatlaðra afreksmanna í heiminum. Fólk með fötlun er sérstaklega hvatt til að mæta í frjálsíþróttahöllina og kynna sér íþróttaflóruna. 

Á meðal þess sem verið er að kynna eru íþróttagreinarnar boccia, borðtennis, sund, frjálsíþróttir, bogfimi, lyftingar og hjólastólakörfubolti. 

Ingó veðurguð tekur á móti gestum og spilar nokkur lög. 

ÍSÍ hvetur fólk til þess að mæta á þennan skemmtilega viðburð á vegum Íþróttasambands fatlaðra.