Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

07.05.2024 - 07.05.2024

Ársþing HSV 2024

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV)...
25

Helgi Þór endurkjörinn formaður TSÍ

27.04.2015

Ársþing Tennissambands Íslands fór fram í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal 21. apríl síðastliðinn. Engar breytingar urðu á aðalstjórn en smávægilegar breytingar á varastjórn.
Helgi Þór Jónasson var sjálfkjörinn formaður Tennissambands Íslands fimmta árið í röð. Ásta Kristjánsdóttir og Gunnar Þór Finnbjörnsson voru sjálfkjörin í aðalstjórn til tveggja ára. Fyrir sitja í aðalstjórn Þrándur Arnþórsson og Bragi Leifur Hauksson. Kosnir voru áfram í varastjórn þeir Jónas Páll Björnsson og Raj K. Bonifacius, auk þess sem Carola Frank bættist við og voru þau öll sjálfkjörin. 

Fulltrúar ÍSÍ á þinginu voru Helga Steinunn Guðmundsdóttir varaforseti ÍSÍ og Hafsteinn Pálsson sem einnig gegndi embætti þingforseta.