Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
27.07.2024 - 13.08.2024

Keppni í 100 m...

Anton Sveinn McKee keppir í 100 m bringusundi...
27

Hádegisfundur um fjölmiðlamál íþróttahreyfingarinnar

28.11.2014Fimmtudaginn 4. desember mun ÍSÍ bjóða upp á hádegisfund í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal 
um fjölmiðlamál og hefst fundurinn kl.12:00. Umfjöllunarefnið er fjölmiðlafulltrúi,  fjölmiðlatengsl og markvisst kynningarstarf. Fundurinn er opin öllum áhugasömum og gagnast sérstaklega þeim aðilum sem vinna við kynningarstarf í íþróttafélögum, héruðum eða í sérsamböndum. 

Ómar Smárason leyfis- og markaðsstjóri KSÍ mun leiða okkur í sannleika um hvað fjölmiðlafulltrúi sérsambands/félags gerir, hvernig hann kemst að í fjölmiðlum og hvernig setja á fram efni svo að eitthvað sé nefnt. Þá mun Eggert Skúlason margreyndur fjölmiðlamaður og fjölmiðlafulltrúi ræða um hvernig vinna á fréttatilkynningu, hvernig upplýsingum er komið á framfæri og hvenær er  tilefni til að setja upp blaðamannafund? Fundinum stjórnar Viðar Garðarsson. Skráning er á skraning@isi.is og verður fundurinn sendur út á netinu.