Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

25.10.2024 - 26.10.2024

Landsþing LH 2024

Ársþing Landssambands hestamannafélaga verður...
01.11.2024 - 30.11.2024

Syndum

Verkefnið Syndum hefst 1. nóvember og stendur...
12.11.2024 - 12.11.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
24

Samnorræn yfirlýsing vegna hagræðingu úrslita

14.03.2014

ÍSÍ hefur, ásamt systursamtökum sínum í Svíþjóð, Finnlandi, Danmörku og Noregi, undirritað sameiginlega yfirlýsingu varðandi baráttu gegn hagræðingu úrslita í íþróttum (match fixing).  Yfirlýsingin miðar að því að styðja opinbera aðila sem vinna að því, ásamt Evrópuráðinu, að koma á alþjóðlegum sáttmála um baráttu gegn hvers konar hagræðingu úrslita í tengslum við ólöglega veðmálastarfsemi.  Einnig að aðstoða við innleiðingu slíks sáttmála þegar hann hefur öðlast gildi. 

Hagræðing úrslita í íþróttum er ekki orðið eins víðtækt vandamál í V-Evrópu eins og það er í Asíu og A-Evrópu en norrænu íþróttasamtökin taka þetta skref og vinna að því í sameiningu að berjast gegn þessari vá sem að íþróttum steðjar.  Yfirlýsing þessi kemur í kjölfarið af aukinni áherslu og vinnu Alþjóðaólympíunefndarinnar í þessum málefnum undanfarna mánuði.

Hér má sjá fréttatilkynningu Associated Press varðandi málið.