Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
20.09.2024 - 21.09.2024

Ársþing SKÍ 2024

Ársþing Skíðasambands Íslands verður haldið...
22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
30

Seinni umferð í stórsvigi kvenna hefst kl. 09:00

18.02.2014

Nú kl. 09:00 hefst seinni umferð í stórsvigi kvenna á Vetrarólympíuleikunum í Sochi en þar keppa Helga María Vilhjálmsdóttir og Erla Ásgeirsdóttir.  Helga María er í 51. sæti og Erla í 57. sæti eftir fyrri umferðina sem fram fór snemma í morgun.  Besta tímanum í fyrri umferðinn náði Tina Maze frá Slóveníu en hún hefur þegar unnið til gullverðlauna í bruni á leikunum.

Í seinni umferð ræsa 30 efstu keppendurnir í öfugri tímaröð og síðan verða keppendur ræstir eftir röð í fyrri umferðinni.  Alls voru 90 keppendur skráðir til leiks og af þeim náðu 74 niður í morgun.  Helga María ræsir númer 51 og Erla númer 57.

Tíminn hjá Helgu Maríu í fyrri ferðinni var 1:26,39 mín. eða 8,51 sekúndum á eftir Maze en Erla kom í mark á 1:30,15 eða 12,27 sekúndum á eftir Maze. 

Myndin var tekin af þeim Erlu og Helgu Maríu eftir fyrri ferðina í morgun.