Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Fjármálaráðstefna ÍSÍ og Formannafundur ÍSÍ

29.11.2013

Það er í nógu að snúast í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal í dag.  Fjármálaráðstefna ÍSÍ verður haldin í Laugardalshöll kl. 13:00 - 16:00 og í kjölfarið, eða kl. 16:30 hefst árlegur Formannafundur ÍSÍ í E-fundarsal ÍSÍ í Laugardal.

Á Fjármálaráðstefnunni verður fjallað um lykiltölur úr rekstri íþróttahreyfingarinnar ásamt því að fulltrúar fimm íþróttafélaga munu halda erindi um rekstur íþróttafélaga.  Opnar umræður verða að loknum erindum.  Við hvetjum alla áhugasama að mæta á ráðstefnuna en ráðstefnan er öllum opin á meðan húsrúm leyfir og ekki þarf að greiða neitt þátttökugjald.

Formannafundur ÍSÍ er haldinn ár hvert á tímabilinu október-desember.  Þar hittast formenn allra sambandsaðila ÍSÍ, þ.e. formenn sérsambanda ÍSÍ og héraðssambanda/íþróttabandalaga ÍSÍ ásamt framkvæmdastjórn ÍSÍ.

Í dag hittast einnig, á óformlegum fundi, fulltrúar héraðssambanda/íþróttabandalaga og spjalla um sameiginleg hagsmunamál.