Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
27.07.2024 - 13.08.2024

Keppni í 100 m...

Anton Sveinn McKee keppir í 100 m bringusundi...
27

Ólafur E. Rafnsson sæmdur æðstu viðurkenningu European Olympic Committees

22.11.2013Ólafur E. Rafnsson var í dag heiðraður með æðstu viðurkenningu European Olympic Committiees (EOC), Order Of Merit Award, á ársþingi samtakanna sem fram fer í Róm. Eiginkona Ólafs heitins, Gerður Guðjónsdóttir, ásamt börnum þeirra Auði, Sigurði og Sigrúnu, tók á móti viðurkenningunni frá Patrick Hickey forseta EOC. Varaforseti EOC, Alexander Koslovski flutti ávarp þar sem hann fór stuttlega yfir feril Ólafs innan íþrótta- og olympíuhreyfingarinnar í máli og myndum.  Gerður flutti síðan þakkarávarp fyrir hönd fjölskyldunnar. Í virðingarskyni risu allir úr sætum á meðan afhendingarathöfnin fór fram og ljóst að allir viðstaddir voru djúpt snortnir.
Ólafur naut mikillar virðingar innan ólympíuhreyfingarinnar. Minning hans lifir.