Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Hreyfitorg, formleg opnun og málþing

11.09.2013 Gagnvirki vefurinn Hreyfitorg verður opnaður með formlegum hætti föstudaginn 13. september  kl. 14. Í tilefni opnunarinnar verður á sama tíma haldið málþingið Þjálfun almennings - ábyrg þjónusta, upplýst val.

Embætti landlæknis hefur haft umsjón með uppbyggingu Hreyfitorgs en aðrir aðstandendur vefsins eru Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Félag sjúkraþjálfara, Íþróttakennarafélag Íslands, Læknafélag Íslands, Reykjalundur, Ungmennafélag Íslands og VIRK starfsendurhæfingarsjóður. Samhliða formlegri opnun Hreyfitorgs mun Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands taka við umsjón vefsins úr höndum Embættis landlæknis.

Meginmarkmið Hreyfitorgs er að auðvelda þeim sem leita eftir þjónustu fyrir sig eða aðra, t.d. foreldrum og ýmsu fagfólki, að finna hreyfingu sem samræmist getu og áhuga hverju sinni og stuðlar að heilbrigði og vellíðan. Hreyfitorg er þannig m.a. ætlað að styðja við uppbyggingu kerfis um ávísun á hreyfingu (Hreyfiseðils).

Þjónustuaðilar sem bjóða upp á hreyfingu sem samræmist markmiðum Hreyfitorgs geta sótt um að kynna sína þjónustu á vefnum, sér að kostnaðarlausu. Sérstök áhersla er á að stuðla að auknu  framboði á einfaldri og ódýrri hreyfingu sem flestir ættu að geta stundað.

Opnun Hreyfitorgs fer fram í upphafi málþingsins, sem stendur frá kl. 14:00 – 16:15. Þátttaka í opnuninni og málþinginu er án endurgjalds en skrá þarf þátttöku. Nánari upplýsingar um dagskrá og skráningu eru á heimasíðu Embættis landlæknis.