Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
27.07.2024 - 13.08.2024

Keppni í 100 m...

Anton Sveinn McKee keppir í 100 m bringusundi...
27

Heiðursmenn að norðan heiðraðir á þingi ÍF

13.03.2013

Ársþing Íþróttasambands fatlaðra var haldið á Radisson Blu Hóteli Sögu 9. mars síðastliðinn. Þingið var vel sótt af þingfulltrúum og margt góðra gesta. Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands var viðstaddur setningu þingsins ásamt Katrínu Jakobsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra, Guðbjarti Hannessyni velferðarráðherra og Ögmundi Jónassyni innanríkisráðherra.

Hafsteinn Pálsson úr framkvæmdastjórn ÍSÍ var fulltrúi ÍSÍ á þinginu ásamt því að vera þingforseti.  Hafsteinn afhenti Hauki Þorsteinssyni formanni Eikar á Akureyri og Jósep Sigurjónssyni formanni Akurs á Akureyri Gullmerki ÍSÍ fyrir góð störf í þágu íþrótta fatlaðra. Meðfylgjandi mynd var tekin við þetta tækifæri og þar má sjá frá vinstri Hafstein, Jósep og Hauk.