Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
19

Ársþing USAH

04.03.2013

Ársþing Ungmennasambands Austur-Húnvetninga fór fram í gær, 3. mars. Mikið og gott starf unnið hjá sambandinu og aðildarfélögum nú á afmælisári sambandsins en þann 30. mars 2012 voru liðin 100 ár frá stofnun þess. Gerðar voru breytingar á lögum sambandsins og einnig var samþykkt að stofna 3ja manna nefnd um framtíðarsýn og hlutverk sambandsins. Nefndin á að skila tillögum inn til stjórnar fyrir næsta ársþing.

Ein breyting varð á stjórn félagsins en Jófríður Jónsdóttir lét af störfum gjaldkera og Jóhanna G Magnúsdóttir var kjörin í hennar stað.  Íþróttamaður USAH var valinn Ólafur Magnússon, Hestamannafélaginu Neista.  Hvatningarverðlaun fékk ritnefnd Húnavökuritsins.

Fulltrúi ÍSÍ á þinginu var Garðar Svansson. Meðfylgjandi mynd sýnir þingfulltrúa að störfum.