Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.03.2023 - 26.03.2023

Ársþing LSÍ 2023

Ársþing Lyftingasambands Íslands (LSÍ) verður...
27

Lyftingasamband Íslands 40 ára

29.01.2013Lyftingasamband Íslands fagnaði 40 ára afmæli sambandsins 26. janúar síðastliðinn með hátíðardagskrá og hátíðarkvöldverði í samstarfi við Alþjóðlegu Reykjavíkurleikana.  Fyrr þann sama dag var alþjóðlega RIG mótið í ólympískum lyftingum í aðstöðu Lyftingafélags Reykjavíkur, Skeifunni 8.
Fulltrúar ÍSÍ í afmælisdagskrá sambandsins voru Gunnar Bragason gjaldkeri ÍSÍ, Helga Steinunn Guðmundsdóttir ritari ÍSÍ og Ingibjörg Bergrós Jóhannesdóttir stjórnarmeðlimur ÍSÍ.  Á meðfylgjandi mynd má sjá Ingibjörgu Bergrós og Helgu Steinunni afhenda Lárusi Páli Pálssyni formanni LSÍ afmælisplatta og blómvönd í tilefni dagsins.