Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
27.07.2024 - 13.08.2024

Keppni í 100 m...

Anton Sveinn McKee keppir í 100 m bringusundi...
26

Sviðsstjóri með kynningu fyrir ÍKFÍ

10.09.2012Sviðsstjóri Þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ var með fyrirlestur um samnorræna verkefnið "Þrekraunir" á endurmenntunardegi Íþróttakennarafélags Íslands á Laugarvatni föstudaginn 7. september síðastliðinn.  Þrekraunir er verkefni á vegum norrænu skólaíþróttanefndarinnar og ætlað 7. og 8. bekk grunnskóla á öllum Norðurlöndunum.  Verkefnið gengur út á keppni í nokkrum líkamsæfingum þar sem áðurnefndir bekkir hafa rétt til þátttöku og geta unnið til verðlauna.  Árangurinn er skráður á heimasíðu verkefnisins og sjá íþróttakennarar skólanna um skráninguna.  Niðurstöður verða birtar þann 12.12. 2012 kl. 12.12.
 
Frekari upplýsingar um verkefnið veitir sviðsstjóri Þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ á vidar@isi.is eða í síma 460-1467.  Einnig er hægt að skoða heimasíðu verkefnisins sem er nordicschoolsport.com