Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
27.07.2024 - 13.08.2024

Keppni í 100 m...

Anton Sveinn McKee keppir í 100 m bringusundi...
27

Lífshlaupið í framhaldsskólum

06.09.2012Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, í samstarfi við embætti landlæknis og í tengslum við verkefnið Heilsueflandi framhaldsskóla, stendur fyrir Lífshlaupi fyrir framhaldsskóla sem fram fer dagana 3.-16. október næstkomandi.
Sérstakur vefur hefur verið útbúin fyrir þetta verkefni og verður öllum framhaldsskólum boðið að taka þátt og skrá sig til leiks.  Hægt er að skrá nemendur og starfsfólk í verkefnið í gegnum heimasíðu Lífshlaupsins, www.lifshlaupid.is til 26. september næstkomandi.
 
Lífshlaupið er kjörið verkefni til að hvetja nemendur og starfsfólk til að auka sína hreyfingu í frístundum og við val á ferðamáta.