Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

15.04.2023 - 15.04.2023

Ársþing ÍF 2023

Ársþing Íþróttasambands fatlaðra (ÍF) verður...
15.04.2023 - 15.04.2023

Ársþing BLÍ 2023

Ársþing Blaksambands Íslands verður haldið í...
31

Ólympíuleikarnir í London

27.07.2012Í tilefni af afmælisárinu var ákveðið að leggja áherslu á að kynna ólympíufara okkar Íslendinga með meira þunga. Gefið var út veglegt Íþróttablað sem dreift var á öll heimili á landinu í aðdraganda leikana. Kynning á ólympíuförum okkar var meira áberandi en áður, ÍSÍ var í samstarfi við MBL sjónvarp þar sem flestir íþróttamennirnir voru kynntir til leiks, einn og einn. Mannlíf var með myndaþátt af núverandi og fyrrverandi ólympíuförum, Vikan birti myndir af öllum og Morgunútvarp RÚV tók viðtal við flesta þá sem kepptu í London.