20.11.2023
Mennta- og barnamálaráðuneytið, í samstarfi við ÍSÍ, UMFÍ og Samband íslenskra sveitarfélaga, boðar til ráðstefnunnar Vinnum gullið – ný stefna í afreksíþróttum á Íslandi mánudaginn 20. nóvember kl. 09.00 - 16.00 í Gullteig á Grand Hótel Reykjavík. Einnig verður streymt frá ráðstefnunni.