Ólympíuhópur ÍSÍ
Ólympíuleikarnir fara fram í París í Frakklandi 26. júlí til 11. ágúst 2024.
Neðangreindir fimm einstaklingar mynda Ólympíuhóp ÍSÍ. Þeir hafa tryggt sér þátttökurétt á leikunum eða fengu boðssæti vegna góðs gengis í keppnum síðustu mánuði. Æfingar og almennur undirbúningur stendur sem hæst hjá öllum en hópurinn hittist reglulega síðstaliðinn vetur, sem var hluti af hinum félagslega og andlega undirbúningi fyrir sjálfa leikana.
Vésteinn Hafsteinsson, Afreksstjóri ÍSÍ, hefur haldið utan um hópinn og mun fara með honum út sem aðalfararstjóri.
Hér fyrir neðan má finna dagskrá þeirra keppenda sem fara á leikana.
Hér má finna dagskrá fyrir Ólympíuleikana.
Anton Sveinn McKee, bringusund
Er fyrsti keppandinn í Ólympíuhópi ÍSÍ sem tryggði sér þátttökurétt á Ólympíuleikana, en það var í júlí 2023.
Anton Sveinn er 30 ára og syndir fyrir Sundfélag Hafnarfjarðar. Hann byrjaði mjög ungur að synda og hefur synt alla tíð.
Anton Sveinn keppir í 100m og 200m bringusundi og keppir:
27. júlí 100m bringusund kl.09.00 ísl.tíma.
30. júlí 200m bringusund um kl.11.00 ísl.tíma
Guðlaug Edda Hannesdóttir, þríþraut
Er annar keppandinn í Ólympíuhópi ÍSÍ inn á Ólympíuleikana en Guðlaug fékk boð um þátttöku í maí 2024.
Guðlaug Edda er 29 ára og æfir bæði á Íslandi og erlendis en hún byrjaði að æfa þríþraut árið 2017. Ólympísk þríþraut samanstendur af 1,5km sundi, 40km hjólreiðum og 10km hlaupi.
Guðlaug Edda keppir 31. júlí kl.06.00 ísl.tíma
Hákon Þór Svavarsson, haglabyssuskotfimi
Er þriðji keppandinn í Ólympíuhópi ÍSÍ inn á Ólympíuleikana en Hákon Þór fékk boð um þátttöku í júní 2024.
Hákon Þór er 45 ára og æfir með Skotíþróttafélagi Suðurlands. Hann byrjaði að æfa haglabyssuskotfimi 21 árs.
Hákon Þór keppir á Chateauroux Shooting Ctr., sem er í um 270 km fjarlægð frá París, og keppir sem hér segir:
2. ágúst kl.07.30 ísl.tíma - keppni 75 skot
3. ágúst kl.07.30 ísl.tíma- keppni 50 skot
Snæfríður Sól Jórunnardóttir, skriðsund
Er fjórði keppandinn í Ólympíuhópi ÍSÍ inn á Ólympíuleikana en Snæfríður Sól fékk boð um þátttöku í júní 2024.
Snæfríður Sól er 23 ára og æfir með Aalborg svömmeklub. Hún byrjaði mjög ung að synda og hefur synt alla tíð.
Snæfríður keppir í 100m og 200m skriðsundi og keppir:
28. júlí 200m skriðsund kl.10.00 ísl.tíma.
30. júlí 100m skriðsund um kl.10.50 ísl.tíma
Aðrir í Ólympíuhópi ÍSÍ sem ekki taka þátt í Ólympíuleikunum að þessu sinni:
Erna Sóley Gunnarsdóttir, kúluvarp
Er fimmti keppandinn í Ólympíuhópi ÍSÍ inn á Ólympíuleikana en Erna Sóley fékk boð um þátttöku í júlí 2024.
Erna Sóley er 24 ára og æfir með ÍR. Hún byrjaði 9 ára að æfa frjálsar íþróttir.
Erna Sóley keppir í kúluvarpi. Keppnisdagar eru:
8. ágúst kl.08.25 ísl.tíma
9. ágúst kl.17.40 ísl.tíma verða úrslit
Hér er Instagramsíða Ernu Sóleyjar
Baldvin Þór Magnússon, 5000m hlaup
25 ára og æfir erlendis.
Byrjaði að hlaupa 12 ára.
Guðni Valur Guðnason, kringlukast
28 ára æfir með ÍR.
Byrjaði að æfa kringlukast árið 2014.
Hilmar Örn Jónsson, sleggjukast
28 ára og æfir með FH.
Byrjaði 12 ára að æfa frjálsar og 15 ára í sleggjukasti.
Ingibjörg Erla Grétarsdóttir, taekwondo
29 ára og æfir með Björk.
Byrjaði árið 2002 að æfa taekwondo.
Eygló Fanndal Sturludóttir, ólympískar lyftingar
22 ára og keppir fyrir hönd Lyftingafélags Reykjavíkur.
Byrjaði að æfa ólympískar lyftingar árið 2020.
Svana Bjarnason, klifur
32 ára og æfir með Blackout í Frakklandi.
Byrjaði að klifra um 10 ára aldurinn.
Thelma Aðalsteinsdóttir, áhaldafimleikar
23 ára og æfir með Gerplu.
Byrjaði að æfa 3 ára.
Valgarð Reinhardsson, áhaldafimleikar
27 ára og æfir með Gerplu.
Byrjaði að æfa 5 ára.