Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

10.04.2026 - 11.04.2026

Ársþing FRÍ 2026

Ársþing Frjálsíþróttasambands Íslands (FRÍ)...
4

#1

Sjálfstæðisflokkurinn er sammála þeirri fullyrðingu að markvisst beri að styðja við ÍSÍ til að draga úr hreyfingarleysi íslensku þjóðarinnar og þá sérstaklega barna og ungmenna.  Vísa má til þeirrar stefnumótunar sem unnin var undir heitinu “’Iþróttavæðum Ísland” að frumkvæði ráðherra Sjálfstæðisflokksins.

 

#2

Sjálfstæðisflokkurinn telur Afrekssjóð ÍSÍ gegna mikilvægu hlutverki.  Ráðherrar Sjálfstæðisflokksins í síðustu ríkisstjórnum beittu sér fyrir eflingu sjóðsins.

 

#3

Sjálfstæðismenn höfðu forystu um að Ferðasjóður íþróttafélaga væri stofnaður.  Flokkurinn vill að sjóðnum verði tryggt aukið fjármagn eins og aðstæður leyfa.

 

#4

Sjálfstæðisflokkurinn beitti sér í ríkisstjórn fyrir uppbyggingu þjóðarleikvanga annars vegar á Laugardalsvelli fyrir knattspyrnu og hins vegar í Hlíðarfjalli fyrir skíðaíþróttir.  Meta verður á hverjum tíma hvort að rétt sé að fara í fleiri slík uppbyggingarverkefni.

 

#5

Sjálfstæðisflokkurinn vill að stutt sé vel við bakið á afreksíþróttafólki og telur Afrekssjóð ÍSÍ rétta vettvanginn til þess.

 

#6

Það er mikilvægt að styðja vel við bakið á ungu og efnilegu íþróttafólki.  Hvernig og í hversu ríkum mæli ræðst af aðstæðum á hverjum tíma.  Mikilvægt era ð hið opinbera og íþróttahreyfingin eigi náið samráð um hvernig best sé að forgangsraða þeim fjármunum sem varið er til íþróttamála hverju sinni.