![Heidursholl_Sigurjon.jpg (213402 bytes)](/library/Myndir/Heidursholl/Heidursholl_Sigurjon.jpg)
Sigurjón Pétursson
![](/library/Myndir/Afreks--og-olympiusvid/Heidursholl/SP1.jpg?proc=250x250)
Sigurjón Pétursson glímukappi var útnefndur í Heiðurshöll ÍSÍ á 71. íþróttaþingi ÍSÍ árið 2013.
Sigurjón Pétursson fæddist 9. mars árið 1888 og lést 3. maí árið 1955. Hann var einn mesti íþróttakappinn á Íslandi á öðrum áratug tuttugustu aldar, meðal annars Glímukóngur Íslands árin 1910-1919, sexfaldur skjaldarhafi Ármanns, góður skautahlaupari, sundmaður, göngugarpur og frjálsíþróttamaður.
Sigurjón Pétursson hafði frumkvæði að því að íþróttahreyfingin á Íslandi sameinaðist undir merkjum Íþróttasambands Íslands þann 28. janúar árið 1912, sem varð meðal annars til þess að Íslendingar gátu keppt fyrir hönd þjóðarinnar á Ólympíuleikunum árið 1912. Hann keppti í glímu á Ólympíuleikunum 1912, þar sem hann komst í átta manna úrslit, og hlaut fjölmargar viðurkenningar fyrir margskonar íþróttir á sínum íþróttaferli.
Það er ÍSÍ mikill heiður að útnefna Sigurjón Pétursson í Heiðurshöll ÍSÍ.