Vel heppnað fræðslukvöld Íþróttamannanefndar ÍSÍ
20.03.2026
Íþróttamannanefnd ÍSÍ stóð fyrir fræðslukvöldi í höfuðstöðvum KSÍ mánudaginn 16. mars þar sem fjallað var um mikilvæga þætti sem tengjast því að byggja upp og viðhalda farsælum íþróttaferli.
Fyrirlesarar kvöldsins voru Kristinn Jónasson, Björn Berg og Silja Úlfarsdóttir sem nálguðust viðfangsefnið frá ólíkum sjónarhornum.
Kristinn fór yfir helstu atriði sem snúa að samningagerð íþróttafólks og útskýrði meðal annars muninn á því að starfa sem verktaki annars vegar og launamaður hjá íþróttafélagi hins vegar. Hann lagði áherslu á að íþróttafólk kynni sér vel réttindi sín og skyldur áður en gengið er frá samningum, óháð því undir hvaða fyrirkomulagi er unnið.
Björn fjallaði um mikilvægi þess að huga snemma að fjármálum og hvatti íþróttafólk til að hefja reglubundinn sparnað sem fyrst. Sérstaklega var lögð áhersla á mikilvægi þess að greiða í lífeyrissjóð frá upphafi ferils til að byggja upp fjárhagslegt öryggi til framtíðar.
Silja deildi reynslu sinni sem einstaklingsíþróttamaður og varpaði ljósi á þær áskoranir sem fylgja því að standa einn að baki eigin ferli. Hún benti á að líf einstaklingsíþróttamanns geti oft verið einmanalegt og krefjist mikillar þrautseigju. Þá eru fjárhagsleg tækifæri gjarnan takmarkaðri en í mörgum hópíþróttum, sem gerir skipulag og yfirsýn yfir fjármál enn mikilvægari.
Fræðslan var tekin upp og verður gerð aðgengileg á næstu dögum. Nánar verður auglýst þegar upptakan verður aðgengileg.